07desember

Ćjć

Veit svosem ekkert hvað ég á að segja þannig að ég er að hugsa um að skella einni sögu af leikskólanum

Einn daginn þegar ég var á leiðinni út úr hurðinni heima hjá mér var ég með Júlíu í fanginu og hún hafði náð í smartís og sturtað því yfir mig... Núbb þegar ég kom á leikskólann skelli eg mér beint í söngstund þar sem ég sit á gólfinu. Eftir smá stund var ein stelpan farin að vesenast í brjóstonum á mér og allt í einu stingur hún hendinni á kaf oní brjóstarhaldarann hjá mér og stingur hendinni strax á vaðandi siglingu upp í gúllann á sér og ég spyr, hvað ertu að gera? þá segir hún voðalega kæruleisislega "Ég var bara að fá mér smá smarties" !!!!!

Ótrúleg alveg hreynt
nenni ekki meira,
bendi á ylfalind.minnsirkus.is
kveðja
Ylfa Lind
07. desember 2006 klukkan 01:37
Ylfa Lind Gylfadóttir
6 athugasemdir
05desember

Ađ sjálfsögđu......

Tapaði stelpan sér inni á minnsirkus í dag, hvet alla til að lesa vel og vandlega!!!!!
Síðan er ylfalind.minnsirkus.is

Takk takk
Ylfa Lind
05. desember 2006 klukkan 22:17
Ylfa Lind Gylfadóttir
1 athugasemd
24nóvember

ÉG ER ORĐIN AMMA!!!!!

Kristrún Heiða var að eignast litla stelpu í nótt klukkan 23:58 og heilsast móður, barni og föður vel.
Útvíkkun tók reyndar alveg 16 tíma en það tók ekki nema 20 mín að koma krílinu út.
Ég heyrði í nýbökuðu móðurinni rétt áðan og allt gengur eins og í sögu, þau ætla að vera á spítalanum þangað til að þeim verður hent öfugum út.

Og nú er eins og alltaf
NÚ LANGAR MIG LÍKA
það er bannað að skilja mig alltaf svona útundan, ég verð að far að finna einhvern sem er nógu fjandi vitlaus til að fara að eiga með mér barn..... en sá vitleisingur gæti verið vandfundinn skal ég ykkur segja

En í aðra sálma þá er ég að vinna alla helgina og geri sjálfsagt ekki neitt af viti allann þann tíma, en ég er með alveg rosalega heitar hugleiðingar á minnsirkus síðunni minni sem er ylfalind.minnsirkus.is og bið ég alla um að segja hug sinn um þau mál sem ég kasta fram þar, og að lokum þá mæli ég með því að allir reyni að fá sér svona minnsirkus síðu,alveg rosalega gaman að vesenast í þessu
kveðja
Ylfa Lind

24. nóvember 2006 klukkan 18:06
Ylfa Lind Gylfadóttir
3 athugasemdir
21nóvember

Jćja

Þá er vetur konungur kominn og búin að leggja net sín yfir borgina.......
Allir að drepast úr kulda og enginn að komast áfram á bílum sínum.
Mörgum finnst æðislegt að fá snjó og er ég því liði algerlega ósammála, snjór kostar ekkert nema vesen, enda hef ég aldrei skilið hvað ég er enn að gera hérna á þessum klaka, og enn síður skil ég það að eina tilraun mín til að flytja mig búferlum frá klakanum eru Danmörk og Svíþjóð...... þvílikt gáfnarfar hjá einni manneskju
en það verður að hafa það, koma tímar koma ráð sagði einhver.

En ég svona varð bara að kíkja hingað og setja eitthvað inn maður má ekki vera latur

en endilega munið minnsirkus síðuna mína, ég er nefninlega miklu duglegri þar
en síðan er ylfalind.minnsirkus.is

ciao
Ylfa Lind
21. nóvember 2006 klukkan 22:59
Ylfa Lind Gylfadóttir
2 athugasemdir
16nóvember

Minn sirkus

Nú er ég svo oppsalega dugleg að ég er komin með síðu á minnsirkus líka, menn eiga bara ekki til orð.
Ég er sum sé ylfalind á minn sirkus og endilega allir að koma að skoða og sjá

En aðgerðin gekk alveg svakalega vel og ég er orðin altalandi og óþolandi aftur.
Ég missti ekki gramm af fitu við þetta heldur fitnaði bara þar sem að þetta er ekki eins og hálskirtlataka, maður getur borðað um leið og maður kemur út, því er nú ver og andskotans miður,  þar sem að ég vorkenndi sjálfri mér svo svakalega mikið að ég át nammi og viðbjóð í færibanda vinnu allann veikindartímann.

EEEEEEEeeeeeen að öðrum málum
ég er að fara á jólahlaðborð í Perlunni í kvöld, langar samt eiginlega frekar að fara beint heim eftir vinnu en verður maður ekki að fara og vera með
plús það að þá finnst mér ekkert leiðinlegt að borða.

Svo þegar ég kem heim þá fæ ég að hitta Ben vin hennar Önnu Mæju sem er kominn alla leið frá New York í heimsókn til að sjá Sykurmolana á morgun, hlakkar ekkert smá til að sjá tónleikana maður, ég meina hver bjóst við því að manneskja í minni kynslóð fengi að sjá Sykurmolana spila live...... rosa spennó

Jæja ætla að fara að vinna eitthvað
en endilega munið eftir minn sirkus síðunni minni, ég er einmitt að reyna að safna vinum þar sem að ég er alveg glæ ný

kveðja
Ylfa Lind

16. nóvember 2006 klukkan 18:27
Ylfa Lind Gylfadóttir
2 athugasemdir
02nóvember

one day to go

Úff aðgerðin á morgun, ég er búin að eyða deginum í að tala eins mikið og ég get, og stefni á að tala systur mína í kaf í kvöld, svo er ég búin að éta í allann dag, og ætla fastlega að halda því áfram framm að miðnætti þegar ég þarf að byrja að fasta.

Get ekki sagt að ég sé algerlega laus við kvíða, merkilegt þar sem ég hef farið í milljón aðgerðir um æfina og margar alveg töluvert hættulegri en þessa, það er samt einhver uggur í mér, kanski afþví að þetta snertir röddina, veit það ekki.

En jæja það þýðir ekkert að vera að syrgja þetta endalaust, bið lesendur bara að vera duglega að syngja á djamminu um helgina og minnast mín þar sem ég ligg heima og vafalaust vorkenni sjálfri mér alveg heilann helling.
Það er nefninlega það eina sem mér hlakkar til, það er svo gott að vorkenna sjálfum sér.

Jæja nenni ekki að væla meira, reyni að vera dugleg að blogga á meðan ég er heima svona til að geta tjáð mig eitthvað

kveðja
Ylfa Lind
02. nóvember 2006 klukkan 23:50
Ylfa Lind Gylfadóttir
4 athugasemdir
01nóvember

Nú er illt í efni

Ég á nú ekki bara til eitt aukatekið orð, og gerist það ansi sjaldan lesendur góðir.
Ég hef nú sjaldan verið talin sú heppnasta, samanber æfisögu mína sem kemur út í 13 bindum árið 2076.
Já eins og ég segji aldrei verið heppin en þetta gengur nú út fyrir allann þjófabálk, fjandinn hafi það, ef ég vissi ekki betur þá hefði ég haldið að ég hafi fæðst á föstudeginum 13.
djöshelvandsk..%#$%&/=)(/&%%$$#""#$%&/()(/&%$#"#$%$#"#$%&/

Jæja byrjum nú á byrjuninni, Ylfa litla fór í sakleisi sínu til læknis í gær til að láta tékka á eyronum því að heyrninni er eitthvað farið að förlast (segir maður ekki annars förlast) jæja er troðið inn í einhvern klefa þar sem ég á að ýta á einhvern takka í hvert skipti sem ég heyri hljóð og það gengur svona allt í lagi.
Kem inn til læknisins aftur sem er með svona ohh hvað þú ert óheppin look á andlitinu, þá tilkynnir hann mér að heyrnin er léleg, en ekki heyrnatækjaléleg, og ég ægilega hress spyr eins og fífl," ka venst þetta ekki bara?" Og læknirinn hló, þannig að ég þarf bara að vera svona
Og getiði hvað lesendur góðir ÞETTA VORU GÓÐU FRÉTTIRNAR!!

Núbb þegar ég var á leiðinni út, sneri ég mér á hæl og spurði "Æji fyrst ég er hérna viltu þá ekki kíkja á raddböndin á mér" En þessi læknir er einmitt þekktur fyrir að fylgjast vel með raddbönum söngvara.
Jú jú hann hélt nú að það væri ekkert mál og ég skelli mér í stólinn til hans saliróleg alveg og hann stingur einhverri stöng með ljósi á endanum á kaf í kokið á mér og segir mér að segja íííí, sem ég og gerði. Og þá hvarf allt í einu brosið af vörum hans eins og dögg fyrir sólu.
Þá kemur allt í einu í ljós að ég er með hnút á raddböndunum sem þarf að klippa í burtu Á FÖSTUDAGINN
Ég veit ekki betur en að ég sé í þremur vinnum og það er ekkert grín að fá svona langt frí úr öllum þessum vinnum, og ég á ekkert eftir að geta talað fyrstu vikuna eða meira og svo á ég ekki eftir að geta sungið í allavegana 3 vikur, HJÚKKET AÐ ÉG ER SÖNGVARI!!!!
Ohh ég er svo klikkað pirruð að það nær ekki nokkurri átt, fyrir utan svo það að það veit enginn hvernig röddin á mér verður á eftir, vonandi betri en ég meina tapa ég allri Ylfu úr röddinni, verð ég bara eins og næsta venjulega ég kann að syngja gella, meika það ekki, meika það ekki, meika það engannveginn!!!!

Svo má ekki gleyma því að ég er ekki svæfð nema í neyð, þar sem að það er búið að svæfa mig allt of oft, og ég spyr læknirinn æglilega jákvæð eitthvað "Og hvað er ekki bara hægt að deyfa þetta" Og enn hló læknirinn, og spurði svo í ofanálag hvort ég væri búin að tapa vitinu. Ég tilkynnti honum það svaka fyndin eitthvað að það hefði nú aldrei verið að þvælast neitt fyrir mér og hann hló ekki í það skiptið, enda hef ég aldrei getað komið einum einasta brandara sómasamlega frá mér.

Úff búin að pústa alveg fullt og er enn alveg drullufúl!!
hætt í dag
kveðja
Ylfa Lind
01. nóvember 2006 klukkan 17:59
Ylfa Lind Gylfadóttir
7 athugasemdir
29október

skohh annann daginn í röđ

Jæja það munar sko ekki um dugnaðinn í manni alltaf hreynt, á meira að segja að vera að vinna en ég sá mér fært um smá pásu í geðveikinni hérna.
Nokkrir punktar svona eftir helgina

* Ameríkanar eru heimskir
* Indverskir karlmenn eru aumingjar
* Bretar eru skemmtilegir nema einn
* Víetnamskar þernur eru stórhættulegar
* Ég er hrædd við Litháena
* Íslendingar eru dónalegir


Sonna varð að koma þessu af hjartanu mínu, ég er kanski óþarflega neikvæð, en það finnst mér ekki, stundum meira að segja skil ég karlgreijin vel sem sáu sér ekkert annað fært en að fljúga inn í tvíburaturnana, stundum væri ég til í að gerast sjálfboðaliði, alveg merkilegt hvað fólk getur verið stropað í hausnum, og þá sérstaklega Ameríkanar, asnalegar spurningar og asnalegar kröfur!!

Allavegana, þá fór ég í mat til pabba í gær eftir vinnu í súpu og kjöt, fór svo heim og ætlaði að horfa aðeins á tv með systir minni en hafði ekki orku í það en ákvað að gera það í kvöld í staðin, þar sem að ég má sofa út á morgun, fer nebblega ekki að vinna fyrr en klukkan níu og vinn bara í átta tíma og það á leikskólanum þannig að þetta er alger lúxus.
en jæja endilega komiði með komment um álit ykkar á þessum þjóðernum sem ég nefndi áðan, ég skal alveg þræta um Ameríkanana allavegana framm í rauðann dauðann, fer aldrei af þeirri niðurstöðu!!
Kveðja
Ylfa Lind
29. október 2006 klukkan 17:46
Ylfa Lind Gylfadóttir
4 athugasemdir
28október

jćja jćja

Jæja þá er loks kominn tími á blogg
það er búið að vera svo stropað að gera að það nær ekki nokkurri átt

En síðan síðast hefur nú hitt og annað gerst og margt sem ekki tekur að fara orðum um, en eitt af því sem að tekur því að segja frá er að ég skellti mér í sumarbústað inn á stykkishólm með Eyjó og Viggó.
Við komum á föstudagskvöldi og áttuðum okkur á því þegar við loks vorum búin að finna þetta að það var ekkert rennandi vatn = ekkert klósett og fleira í þeim dúrnum, en við redduðum okkur bara í guðsgrænni, eða það er að segja strákarnir, ég er svo pjöttuð að ég vildi það ekki, enda held ég að það þyki ekkert sérlega pent að mæta rassinum á mér út í loftið.
Allavegana þá grilluðum við okkur og fórum bara snemma í háttinn.
Á laugardeginum fórum við og skoðuðum Stykkishólm betur, rosa sætur bær finnst mér. En um kvöldið var ég svo að syngja á balli þar sem mættu hvorki meira né minna en 20 manns eða svo, en ég verð nú að viðurkenna það að þetta var með skemmtilegri böllum sem ég hef spilað á þrátt fyrir dræma mætingu, stykkishólmingar kunna svo sannarlega að skemmta sér.
Besta var samt við ferðina að við sumarbústaðinn okkar voru alltaf að þvælast einhverjir þrír hundar og þegar við komum heim á laugardagsnóttina öll vel í glasi og þá helst hann Viggó þá heimtaði hann að sofa með einn hundinn uppi í rúminu, þannig hjónarúminu deildu ég Viggó og einhver forláta tík sem heitir að ég held Trýna.
Svo fórum við þunn og sæl heim á sunnudeginum, með stoppi að sjálfsögðu í Hyrnunni í Borgarnesi þar sem við fengum versta mat í sögunni.

Mig langar alveg rosalega á ball í kvöld með Elvu frænku, en ég nenni ekki af því að ég er að vinna í fyrramálið, fyrir utan svo það að heimilið mitt er viðbjóður og það þarf að þrífa, ætluðum að gera það í gær en Helgi og Lóa komu í heimsókn og við mútuðum þeim með nammi til að sjá ekki draslið, sniðugar systur.
En jæja ég ætla að fara að reyna að vinna eitthvað og ég lofa að vera duglegri að blogga.
kveðja
Ylfa Lind

P.s. ef þið farið inn á B2.is og leitið af 25 okt og sjáið eitthvað sem heitir Töluvert hallærislegt klúður.... það er morð fyndið

28. október 2006 klukkan 19:25
Ylfa Lind Gylfadóttir
2 athugasemdir
12október

......

Eitthvað sem ég stal frá Berglindi og vil að allir svari

1. Hvað kallaru mig?
2. Hefuru heyrt mig syngja og ef svo er hvernig hljómaði ég?
3. Hvað á ég eftir að gera á týbísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?
4. Þegar þú hugsar um mig hvaða tvö lög detta þér fyrst í hug?
5. Ef þú þekktir mig ekki og mættir mér einhversstaðar hvort myndiru halda að ég væri á lausu eða föstu?
6. Þegar þú hugsar um mig hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
7. Hvernig sérðu þig fyrir mér í hljómsveit?
8. Hvernig stelpa er ég og í hvaða týpu flokkaru mig?
9. Hvað erum við mörg í fjölskyldunni
10. Hefuru öfundað mig? og ef svo er hvers vegna?
11. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?
12. Hvaða lag minnir þig mikið á mig
13. Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
14. Hvað giskaru á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig?
15. Hversu vel teluru þig þekkja mig?
16. Hvernig stráka/stelpur fíla ég?
17. Hvað geri ég oftast þegar ég hef frítíma?
18. Hvað er mest einkennandi við mig
19. Hvaða búðir elska ég að fara í.


Ég varð að prufa svona og það eiga allir og þá meina ég ALLIR að svara, ég reyndi að svara hjá Berglindi en það kom aldrei í gegn hjá mér, þannig að sorry Berglind ég meira að segja vandaði mig alveg svaðarlega!!

En annars er ekkert búið að vera að ske, bara búin að vera að vinna og gera nákvæmlega ekki neitt.
Eitt er ég var að horfa á the da vinci code í gær, og ég skil ekki afhverju allir eru búnir að vera að kúka yfir myndina, hún er ekkert ÆÐI en hún er samt ekki eins svakalega slæm og allir vilja meina.
En jæja ætla að fara að vinna og MUNA að svara ég er gasalega forvitin hvað fólk segjir við þessu, veit reyndar að það er alveg frekar glatað að hafa svona spurningarlista en ég ætla bara að leifa mér að vera glötuð for now!!
kveðja
Ylfa Lind
12. október 2006 klukkan 23:10
Ylfa Lind Gylfadóttir
23 athugasemdir

Atburđarteljari

Auglýsing

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...